11.10.07

  • Hafið þið tekið eftir því að S-ið í Strætó og S-ið í Skype eru nánast eins !!?? Tilviljun?, held ekki.
  • Af hverju eru svona margir sem að beygja ekki nafnið mitt ?? Það er hér er Íris, um Írisi, frá Írisi, til Írisar EKKI hér er Íris, um Íris, frá Íris, til Íris ! "ég sagði henni að tala við Íris" - nú er ég komin í uppreisn gegn illnafnbeygjandi fólki !
Ég er búin að búa mér til enn eitt nýtt blogg - sorrý fólk : / Blogspot er bara ekki að gera það fyrir mig og ég nenni aldrei að blogga hérna af því ég fíla ekki kerfið - svo það er spurning um að fyrirgefa mér enn einn flutning eða að fyrirgefa mér það að ég hætti bara að blogga?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Humm Strætó fólk eitthvað hugmyndalaust?!?! Spurning?

Veistu þegar ég keypti mér gym kort í NZ þá misskildi starfsmaðurinn svo innilega hvað ég skrifaði...Þannig að alltaf þegar ég fór í gymið hét ég: GUNDREN!!!

Knús - María

Íris sagði...

hahaha æ Gundren mín :Þ

Nafnlaus sagði...

Talandi um Íris, hefurðu komið til Selfossar og Borgarnesar?

Nýtt blogg 1 atkvæði
Hætta 0 atkvæði

Nafnlaus sagði...

íris mín - við fylgjum þér hvert sem er :-)

Nafnlaus sagði...

Ég myndi sko aldrei fyrirgefa þér ef þú hættir að blogga ! Gæti ekki lifað án þess :o) En ég get sko alveg fyrirgefið þér einn flutning :o)

...miss you tooo sæta :o)